Sundabraut 1. áfangi - Matsáætlun
Tillaga að matsáætlun fyrir 1. áfanga Sundabrautar hefur verið lögð inn til Skipulagsstofnunar til málsmeðferðar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum. Verkfræðistofan Línuhönnun verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmaraðila. Hægt er að nálgast eintak af tillögu að matsáætlun hér:
Viðauki 2: Minnisblöð sérfræðinga
Viðauki 3: Athugasemdir við drög að tillögu að matsáætlun
Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir við tillögu að matsáætlun skulu vera skriflegar, þeim er hægt að koma til Skipulagsstofnunar fyrir 31. mars 2008.
Drög að tillögu að matsáætlun
Drög að tillögu að matsáætlun voru kynnt frá 2. júlí til 10. ágúst 2007. Athugsemdafrestur var framlengdur til 10. ágúst. Athugasemdir bárust frá tólf einstaklingum sem búa í nágrenni við Sæbraut og í Grafarvogi. Einnig bárust athugasemdir frá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar, frá Húsfélaginu Hólmasundi 4-20 og frá íbúasamtökum í Grafarvogi, Laugardal, 3ja hverfi (Hlíðar, Holt og Norðurmýri) og Háaleiti norður. Alls bárust athugasemdir frá 18 aðilum.
Ábendingar og athugasemdir ásamt svörum framkvæmdaraðila munu birtast í matsáætlun sem lögð verður inn til Skipulagsstofnunar til málsmeðferðar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum. Skipulagsstofnun mun auglýsa matsáætlunina eins og lög gera ráð fyrir og þá gefst aftur tækifæri til að koma með athugasemdir og ábendingar. Hér er hægt að nálgast drög að tillögu að matsáætlun og viðauka.