Sundabraut 1. áfangi - vegtenging yfir Elliðaárvog

Hafin er  vinna að nýju við undirbúning mats á umhverfisáhrifum fyrir 1. áfanga Sundabrautar í Reykjavík. Áður fór fram mat á umhverfisáhrifum árið 2004. Þá voru lagðir fram 3 valkostir. Matsskýrslu frá 2004 má nálgast hér.

Til mats á umhverfisáhrifum nú er lagður fram einn nýr valkostur, Sundagöng frá Laugarnesi upp í Gufunes sem og breytt lega á áður framlögðum valkosti; Eyjalausn á leið III. Veglína Eyjalausnar sem nú er til skoðunar liggur utan við Gufuneshöfðann á landfyllingu í stað þess að fara í gegnum höfðann.

Verkfræðistofan Línuhönnun verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmaraðila. Drög að kynningu á matsáætlun voru til kynningar frá 2. júlí til 10. ágúst 2007. Hægt er að nálgast drög að tillögu að matsáætlun hér:

Drög að tillögu að matsáætlun
Forsendur

Tilgangur framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur á höfuðborgarsvæðinu með því að létta á umferðarþunga á öðrum vegum, auka öryggi í samgöngum með styttingu vegalengda og aukinni umferðarrýmd, auka hagræði í samgöngum og atvinnustarfsemi og opna fyrir þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu til norðurs og norðausturs.

Í drögum að matsáætlun er fyrirhugaðri framkvæmd, framkvæmdarsvæði og áhrifasvæði lýst. Umfangi umhverfismatsins er lýst og fjallað um hvaða umhverfisþættir verða skoðaðir og hverjir ekki teknir fyrir.

Fyrirhuguð lega Sundaganga frá Laugarnesi að Gufunesi. Gert er ráð fyrir tveimur tengingum á milli jarðgangaendanna, við Klettagarða og við Kleppsmýrarveg. Rauð lína sýnir fyrirhugaða legu vega á yfirborði, ljósblá brotin lína sýnir fyrirhugaða legu jarðganga og dökkblá lína sýnir landfyllingar.


Tengill á vefsíðu um Sundabraut hjá Reykjavíkurborg



Aukaval


Leturstærðir og framsetning


Aukaval


Leit

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli